Tuesday, June 29, 2010

Þessi börn hafa EKKI stuðning - Palestínuferð komin í gang


VIÐAUKI
Bara til að láta ykkur vita að ég er að ganga frá slatta til viðbótar af myndum til ykkar stuðningsmanna:
Þorgerður Sigurjónsdóttir
Stanley Pálsson
Kristín Daníelsdóttir/Valur Kr. Guðmundsson
Pétur Jósefsson
Högni Eyjólfsson
Herdís Jónsdóttir
Herdís Kristjánsdóttir(mynd af Ösmu Atteu)
Birna Karlsdóttir(mynd af Ahlam Hatem)
Sif Arnarsdóttir
Þóra Kristjánsdóttir/Sveinn Einarsson
Sesselja Bjarnadóttir/Ríkharð Brynjólfsson(Báðir drengirnir sem þau styrkja)
Sigrún Valsdóttir
Aðalbjörg Karlsdóttir
Jósefína Friðriksdóttir
Magdalena Sigurðardóttir
Ólafur B. Davíðsson(mynd af öðrum stráknum sem fjölskyldan styrkir. Hin kemur vonandi seinna)
Kristín Sigurðardóttir/Geir Þráinsson(mynd af öðru barninu, hin vonandi seinna)
Helga Sverrisdóttir
Kolbrún Vigfúsdóttir
Sólveig Hannesdóttir
Ingibjörg Hulda Yngvadóttir
Herdís Jónsdóttir
Þorgerður Arnardóttir
Þóra Jónasdóttir
Jóna Einarsdóttir/Jón Helgi Hálfdanarson
Sæl öll

Ég veit að þetta er erfiður tími að safna stuðningsmönnunum handa Jemenbörnum, en flestir vita að það hefst um þetta leyti. Samt hef ég ekki heyrt frá ýmsum þó svo ég hafi séð að þeir fylgjast með pósti sínum.

Mér væri þökk í því að þið létuð mig vita hvort sem þið getið/viljið halda þessu áfram eða ekki.

Þessi börn hafa enn ekki fengið stuðning
B 15 Raad Kamal

B 61 Abdulelah Noman Al Wadi

Af telpum:
G 3 Saadah Agdallah Ali Hussein=Lára V. Júlíusdóttir/Þorsteinn Haraldsson

G 5 Khload Mohamed Ali Al Remee

G 23 Hayat Mohamed Al Matari

G 33 Ola Mohamed Ghaleb

G 36 Sara Tabet Al Ryashi= Eva Júlíusdóttir

G 46 Bushra Sharaf Al Kadasse

G 52 Safwa Samer Al Namoas=Hildur Guðmundsdóttir

G 54 Reem Farooq Al Shargabi

G 59 Sumyah Galeb Al Humhree

G 65 Intedar Hameed Al Harbe

G 79 Garam Abdullah Al Sharabi

G 81 Hekmat Amin Al Kamel

G 90 Nawal Mohamed AlHymee

G 105 Asma Mohamed Shiek

G 106 Ranya Yessin Al Shebani hefur nú fengið stuðningsmenn Aðalbjörg Karlsdóttir og Jósefína Friðriksdóttir.

G 114 Hadeel Kamal Al Zonome=Magdalena Sigurðardóttir hefur staðfest stuðning við Hadeel

G 115 Fatuma Nassr Ahmed Al Jakey

Eins og sjá má hef ég fengið staðfestingu frá mörgum upp á síðkastið en í fljótu bragði vantar mig staðfestingu frá stuðningsmönnum ofantalinna.

Þá er rétt að geta þess að allmargir hafa nú fengið sendar nýjar myndir og enn fleiri fá myndir næstu daga.

Af stuðningsmönnum drengja hef ég póstað myndir eða geri það í dag til

Eyþór Björnsson
Helga Kristjánsdóttir
Ásdís Stefánsdóttir
Ingvar Teitsson(einnig mynd af stúlku sem hann styður)
Edda Ragnarsdóttir
Guðrún C. Emilsdóttir
Sigurpáll Jónsson/Borghildur Ingvarsdóttir(til stúlku og drengs sem þau styðja)
Margrét Hermanns Auðardóttir
Æsa Bjarnadóttir/Sverrir Jakobsson

Stuðningsmenn stúlkna sem hafa fengið mynd eða fá hana í pósti á morgun
Jóna Björnsdóttir
Ólöf Arngrímsdóttir
Vaka Haraldsdóttir
Dóminik Plecdel Jónsson
Birta Björnsdóttir
Guðrún Halla Guðmundsdóttir
Katrín Ævarsdóttir
Sigríður G. Einarsdóttir
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir(mynd af seinni stúlkunni hennar fer í póst á eftir)
Hulda Waddel/Örn Valsson
Þorgerður Þorvaldsdóttir/Kristján Edvardsson(hafa fengið af annarri stúlkunni sem þau styðja)
Guðrún Sverrisdóttir
María Kristleifsdóttir
Margrét Friðbergsdóttir/Bergþór Halldórsson
Bjarnheiður Guðmundsdóttir/Sigfinnur Þorleifsson
Guðrún Guðjónsdóttir(myndir af báðum stúlkunum sem hún styður)
Kristín Einarsdóttir
Vilborg Sigurðardóttir/Vikar Pétursson
Helga Harðardóttir/Sturla Jónsson
Eva Pétursdóttir/Axel Axelsson(af báðum telpunum þeirra)
Jóhanna Kristjónsdóttir
Guðný Ólafsdóttir
Sveinbjörg Sveinsdóttir
Ásta Kr Pjetursdóttir
Valborg Sigurðardóttir
Edda Gísladóttir/Þröstur Laxdal

Palestínuferð komin í gang
Þá hef ég fengið svör frá mönnum í Palestínu og vænti þess að innan tíðar skýrist það.Ferðin virðist alveg fullskipuð og sama gegnir um Uzbekistanferð svo framarlega sem hún verður ekki of dýr. Get þó alltaf skrifað á biðlista.
Íranferð er einnig alveg að verða full en mættu þó 2-3 bætast við.

Fer svo til Uzbekistan og Turkmenistan um helgina að kanna hin aðskiljanlegustu mál.

Tuesday, June 22, 2010

Börn, Palestína, Uzbekistanleyfi


Góðan daginn öll

Þá hef ég fengið búnka af plöggum sem ættu að gera mér kleift að komast inn í Uzbekistan og Turkmenar vinna nú baki brotnu að því að rannsaka feril minn varðandi leyfi til að gægjast inn þar í leiðinni. Fer sem sagt aðfararnótt 5.júlí. Endilega fylgist með, skrifa eftir því sem aðstæður leyfa. Fer á helstu staði sem ég hygg að væru fýsilegir fyrir væntanlegan hóp, sýnist þó áætlunin ansi töff en það gengur vonandi allt.

Það gengur brösuglega að fá Palestínuupplýsingar en ég vona þó að þær skili sér á endanum og læt vita um það jafnskjótt, amk þá sem hafa skráð sig áhugasama.

Loks má geta þess að það er kominn kjarni í Íranferð í mars 2011 en verður ekki af henni nema að minnsta kosti 5-8 bætist við. Sláið ykkur saman í hóp ef þið hafið áhuga á Íranævintýri.

Varðandi krakkana: Síðustu daga hef ég fengið þó nokkrar nýjar myndir frá Nouriu og pósta um 20 á eftir. Var að senda henni beiðni skv. óskum ykkar um sex til viðbótar.

EN málið er flóknara því mjög margir stuðningsmenn hafa ekki látið mig vita hvort þeir treysta sér til að halda áfram. Ég sting upp á að þeir sem hafa tök á að láta eitthvað af hendi rakna greiði helming þannig að tveir/tvær/tvo séu með barn. Ég hef minnst á að æskilegt sé að greitt verði fyrir 1.sept. Auðvitað er vel þegið ef menn gera það fyrr svo ég geti sent einhvern slatta fyrir hátíðina.

Um 85 börn eru komin með staðfestan stuðning en um 35 ekki. Því væri kærkomið að fá að heyra frá ykkur. Einnig hvort menn hafa áhuga á nýjum myndum. Að vísu eru sumir litlu krakkanna farnir frá Sanaa og heim í þorpin sín og koma varla aftur fyrr en eftir rúman mánuð til að sækja sumarnámskeiðin.
Það er engin skylda að halda stuðningi áfram, en mér þætti æskilegt að fá að vita af eða á.
Takk fyrir það.

Wednesday, June 16, 2010

Látið vita ef þið hafið áhuga á nýjum myndum af krökkunum ykkar


Hér er ný mynd af Tahanee Abdallah Ali Al Remee(G 4). Stuðningsmaður hennar síðasta ár var Jóna Björnsdóttir og ég veit ekki annað en hún haldi áfram


Saadah Abdullah Ali Al Remee (G3)Stuðningsmenn s.l. ár voru Lára V. Júlíusdóttir og Þorsteinn Haraldsson

Hér eru nýjar myndir af systrum Tahanee og Saadah Al Remee. Ég hef fengið allmargar fyrirspurnir frá stuðningsmönnum og þeir hafa áhuga á nýjum myndum af börnum sínum.
Nouria hefur sent mér slatta og ég hef látið setja þær á pappír og sent til fjögurra stuðningsmanna og fleiri myndir hafa nú verið sendar og ég kem þeim til ykkar á næstunni.
Ég hef sent Nouriu beiðni um myndirnar í smáskömmtum og hún hefur brugðist vel við. Sumir yngri krakkarnir eru þó komnir heim í þorpin sín í sumarfrí og ekki hægt að ná myndum af þeim að sinni. Eldri stelpurnar eru oft tregar að láta mynda sig án andlitsblæjunnar en það er mesta furða hvað Nouriu tekst að sannfæra þær um að stuðningsmenn eigi það vissulega skilið að þeir fái myndir.
Svo smátt og smátt býst ég við að ná myndum af þeim flestum. Látið mig vinsamlegast vita ef þið viljið að ég sendi ykkur.

Þá bíð ég enn um hríð því nú hafa um sjötíu krakkar fengið stuðningsmenn en um fimmtíu vantar að fá staðfestingu. Ég vil ekki skrifa krakka á fólk nema það staðfesti sig því skuldbinding er aðeins til árs í senn eins og ég hef margtekið fram.

Þessi börn eru að ljúka stúdentsprófi. Glæsilegur árangur. Til hamingju með það
1, G 8 Hamda Jamee Mohamed= Ólöf Magnúsdóttir og Guðmundur Kr. Guðmundsson

2.G 37 Fairouz Mohammed Al Hamyari= Ragnhildur Árnadóttir

3.G 48 Gada Farooq Al Shargabi= Guðríður Ólafsdóttir

4. G 56 Maryam Sl Jumhree= Valborg Sigurðardóttir

5. G 112 Kowza Ahmed Omar= Matthildur og Ágúst Valfells

6.G 120 Hayet Yihia Galeb Al Mansoor= Hjallastefnan

7. B 29 Husam Salman Al Sharifi= Sesselja Bjarnadóttir og Ríkharð Brynjólfsson

8. B 30 Naef Salman Al Sharifi= Loftur Sigurjónsson

9. B 32 Abdulrahman Yehia Al Maswari= Guðný Ólafsdóttir

Nokkrir stuðningsmenn hafa hætt af ýmsum ástæðum. En þætti vænt um að heyra frá öðrum sem ekki hafa látið mig vita. Hef þá trú að við finnum handa öllum krökkunum sem stuðning þurfa.

Friday, June 11, 2010

Rannsóknarferð til Uzbekistan/Turkmenistan


Tolkucha markaðurinn/Turkmenistan

Þá hef ég ákveðið dagsetningu á rannsóknarferð til Uzbekistan. Sé til hvort mér tekst að kíkja einnig til Turkmenistan í 2 daga eða svo. Ég ætla að fara þann 5.júlí n.k. enda er nú ljóst að þátttaka er í ferðina. Vonandi tekst mér að senda einhverja pistla úr ferðinni og hvet fólk til að kíkja inn á síðuna öðru hverju. Nokkurn veginn ákveðið að farið verði um páska 2011 og fljótlega eftir að ég kem heim 15.júlí eða svo ætti verð að liggja fyrir og fullmótuð áætlun.
Vegna misskilnings voru tveir að afboða sig. Því eru tvö pláss laus og þarf að fylla þau snarlega. Gjöra svo vel og athuga að ferðaskrifstofan miðar við ákveðinn fjölda og detti einhverjir út breytist verð - sem ég veit náttúrlega ekki enn hvað verður

Okkur hefur tekist, Icelandairstúlkunni sem sér um okkar mál og mér, að finna bærilegan kost hvað flugmiða snertir svo þetta lítur allt ljómandi vel út.
Ég sé betur eftir ferðina hvort möguleiki er á að bæta í hópinn en varla meira en tveimur eða þremur.

Undirtektir vegna Jemenbarna
hafa verið prýðilegar og takk fyrir það. Hef haft samband við þá sem styrkja börn sem eru að ljúka menntaskólanum. Venjan er hjá hjálparfélögum að styrkja börn þar til þau hafa lokið skyldunámi en mér fannst freistandi að bæta menntaskóla við fyrst stuðningur fékkst.
Næsta vor bætast ellefu við - ljúka stúdentsprófi svo þetta er allt í hinum fegurstu málum.

Palestínuferðin og Íran
Í ágúst kemst ég trúlega í Palestínurannsóknarferð og býst við að ferðin sjálf verði varla fyrr en í lok október. Það er ágætur tími hvað snertir veðurfar og ramadan og hátíðahöld verða þá vel og lukkulega afstaðin.
Alltaf annað veifið láta áhugamenn um Íran frá sér heyra. Ég skrifa þá niður og ferðaskrifstofan okkar er alls hugar glöð við tilhugsunina. Ekki er þó komin næg þátttaka að svo stöddu. Þið hafið það bara bak við eyrað.

Námskeið í utanríkisráðuneyti
Gaman að segja ykkur frá því að utanríkisráðuneyti hefur haft samband og óskar eftir að ég verði þeim innanhandar að undirbúa fólk sem fer á vegum ráðuneytisins til starfa/hjálparstarfa í Miðausturlöndum. Mér finnst þetta hið besta mál hjá ráðuneytinu og fyrsta námskeiðið verður í næstu viku fyrir tvo sem eru á leið út, svo og einhverja af starfsmönnum ráðuneytisins sem vinna í alþjóðadeild. Ljómandi ánægð með framtak ráðuneytisins.

Bless í bili

Sunday, June 6, 2010

Nú þarf ég að biðja ykkur að gefa mér svör um Jemenbarnastuðning



Nú þarf ég að biðja þá sem vilja taka að sér stuðning við Jemenkrakkana okkar að gefa sig fram. Ég veit að sumir eru ákveðnir en þar sem fólk skuldbindur sig til eins árs í senn bið ég alla að staðfesta sig.
Sömuleiðis ítreka ég að menn hætta af ýmsum ástæðum. Menn ættu ekki að hika við að láta mig vita því eins og ég hef sagt er aðeins skuldbinding í ár í senn.

Þetta er sjötta árið sem við styrkjum börnin og síðastu tvö ár höfum við stutt 133 börn. Upphæðin er 250 dollarar og borgist í íslenskum krónum. Fyrir þessa upphæð fá börnin aðstoð í miðstöðinni við heimanám 3svar í viku, tölvukennslu, handmennt, tónlist,þjálfun í íþróttum, leikrænni tjáningu, ræðumennsku ofl. Þau fá hádegisverð, litlu börnin eru sótt en eldri krakkarnir fá strætópeninga. Börnin fá föt fyrir hátíðir og stuðningur er veittur með matargjöfum til fjölskyldna sem allra erfiðast eiga. Innifalið er einnig þáttaka í sumarnámskeiðum á vegum miðstöðarinnar.

Ein stúlkan okkar Hanak Al Matari byrjar 3. ár sitt í háskóla og sex stúlkur hafa náð þeim áfanga að hefja háskólanám og hafa þær verið taldar upp hér fyrr á síðunni. Ekki er enn ljóst hvort allar þeirra fara í háskóla og skýrist það varla fyrr en um miðjan júlímánuð. Það kostar 1100 dollara að kosta nemanda í háskóla og hafa því nokkrir sameinast um að greiða fyrir Hanak þessi 2 ár og sami háttur verður hafður núna, þ.e myndaður hópur 4-5 um hverja þá stúlku sem ákveður að fara í háskóla.

Einnig veit ég að aðstæður eru mismunandi hjá ýmsum um þessar mundir og því ætti fólk að segja mér frá því ef það kýs að leggja fram helming upphæðarinnar ( nú um 32 þús. breytist nokkuð eftir gengi dollar) og þá er hægt að fá annan á móti.
Það er ljómandi hentugt og YERO nefndin sem ég vona að ég geti kallað saman fljótlega mun án efa verða mér innan handar við það.
Það er miklu meira vit í slíku fyrirkomulagi en að skipta greiðslum t.d. í fernt sem fólk stendur ekki alltaf við eða gleymir.

Ég bið VIMA félaga og aðra sem hafa lagt fram liðsinni sitt að senda mér imeil eða skrifa í ábendingardálkinn og væri gott að heyra frá ykkur sem fyrst svo ég geti áttað mig á hversu margir treysta sér til að vera með.

Ástæða fyrir því að ég fer af stað með fyrirspurnir þótt júní sé nýbyjaður er eftirfarandi:
Bróðurpartur stuðningsmanna greiðir snarlega. En alltaf detta einhverjir út - og ekkert nema eðlilegt við það.En þá þarf að ætla sér tíma til að finna nýja og það
tekur oft drjúgan tíma. Það er ágætt
að þeir sem borga alla upphæðina í einni greiðslu séu búnir að greiða fyrir 1.sept. En vegna þess að ramadan hefst um miðjan ágúst og þá langar mig til að vera búin að senda hluta greiðslu svo þau fái sínar hátíðaflíkur, er ég sem sagt frekar snemma í tíðinni.


Reikningsnúmerið er 342 13 551212 og kt 1402403979Kærar þakkir.

Fyrstu staðfestu stuðningsmenn eru komnir hér. Þeir hafa allir stutt börn áður og halda því áfram. Merki við þá sem eru nýir.
Stúlkur:

G 4 Tahanee Agdallah Ali Hussein Al Remee=Jóna Björnsdóttir

G 6 Abir Abdo Al Zabibi= Ólöf Arngrímsdóttir

G 7 Bashayeer Nabil Abbas=Vaka Haraldsdóttir

G 9 Takeyah Mohamed Al Matari= Dóminik Pledel Jónsson

G 10 Uesra Mohamad Al Remee=Birta Björnsdóttir

G 11 Hind Bo Bellah= Guðrún Ólafsdóttir

G 12 Bushra Ali Hussein Al Remee=Katrín Ævarsdóttir(nýr stuðningsmaður)

G 13 Nusaiba Jamil Sharaf Sal Salwee=Þorgerður Sigurjónsdóttir

G 15 Fatten Bo Belah = Guðrún Halla Guðmundsdóttir

G 17 Ahlam Abdul Hamid Al Dhabibi=Ingveldur Jóhannesdóttir

G 19 Sara Mohamad Saleh Al Remee= Sigríður G. Einarsdóttir

G 20 Shemah Abdul Hakim Al Joned=Birna Sveinsdóttir

G 21 Hyefa Salmane Al Sharifi=Borghildur Ingvarsdóttir

G 22Rawia Ali Hamod Al Jobi=Kristín Sigurðardóttir/Geir Þráinsson

G 24 Safa Jamil Sharaf Al Salwee= Ragnheiður Hrafnkelsdóttir

G 25 Rasja Abdo Hisam Al Qodsi= Hulda Waddel/Örn Valsson

G 26 Leeqa Yassen Al Shybani =Þorgerður Þorvaldsdóttir/Kristján Edvarðsson

G 27 Leebia Mohamed Al Hamery= Svanhildur Pálsdóttir(nýr stuðningsmaður)

G 29 Nassim Abdul Hakim Al Joneed= Jóhanna Kristjónsdóttir

G 30 Yesmin Jamil Sharaf Al Salwee= Guðrún Sverrisdóttir

G 31 Reem Ahmed Al Khhani= Þorgerður Þorvaldsdóttir/Kristján Edvarðsson

G 32 Hanan Mohm. Ahmad Al Matari=Jóna Einarsdóttir/Jón Helgi Hálfdanarson

G 34 Geda Mohamed Ali Naser=Þóra Jónasdóttir

G 35 Suzan Mohamed Saleh Al Hamley= Ingibjörg Hulda Yngvadóttir

G 38 Bushra Ali Abdu Omar=Anna Karen Júlíusen

G 42 Bodore Nagi Obad=María Kristleifsdóttir

G 43 Reda Yehya Qaleb Al Ansee=Margrét Friðbergsdóttir/Bergþór Halldórsson

G 44 Shada Yusef Mohamad Al Sammee= Birna Sveinsdóttir

G 45 Anisa Qasim Al Jofee= Sigrún Valsdóttir, Egyptalandi

G 47 Fatten Sharaf Al Kadasse= Bjarnheiður Guðmundsdóttir/Sigfinnur Þorleifsson

G 49 Sabreen Farook Al Shargabi= Guðrún S. Guðjónsdóttir

G 51 Azhar Abdulmalik Al Badani=Helga Sverrisdóttir

G 60 Aysha Abdul Kareem Al Ansee = Þorgerður Arnardóttir og fjölskylda

G 61 Aida Yeheia Al Ansee= Aðalsteinn Eiríksson

G 68 Toryah Yehia Al Oud= Kristín Einarsdóttir

G 71 Hanadi Abdulmalek Al Ansee= Ingvar Teitsson

G 75 Shymaa Ali Mohamed Al Shmeree=Kristín Ásgeirsdóttir Johansen

G 77 Entesar Yheia Awoud Al Radee= Vilborg Sigurðardóttir/Vikar Pétursson

G 84 Haseina Naser Al Hymee= Herdís Kristjánsdóttir

G 95 Amna Kasim Al Jofee =Hjallastefnan

G 97 Amani Abdulkareem Al Unsee = Hjallastefnan

G 98 Ayda Abdullah Al Ansse= Guðrún S. Guðjónsdóttir

G 103 Zaynab Yahya Al Haymee=Hjallastefnan

G 104 Rasha Abdulmalik Al Ansee=Helga Harðardóttir/Sturla Jónsson

G 107 Reem Yessin Al Shebani=Kolbrún Vigúsdóttir

G 108 Heba Yessin Al Shebani= Sólveig Hannesdóttir

G 109 Soha Hameed Al Hashmee= Eva Pétursdóttir/Axel Axelsson

G 110 Sameha Hameed Al Hashmee= Eva Pétursdóttir/Axel Axelsson

G 111 Rehab Hameed Al Hasmeee = Margret Fafin Thorsteinson

G 113 Raqed Kamal Al Zonome= Guðný Ólafsdóttir

G 117 Tagreed Ahmed Abdullah Ayash= Sveinbjörg Sveinsdóttir

G 118 Hanan Yihyia Galeb Al Mansoor= Herdís Kristjánsdóttir

G 119 Shada Yihia Al Mansoor= Margrét Guðmundsdóttir/Brynjólfur Kjartansson

G 116 Thuraia Jamil Sharaf Al Salwee= Herdís Jónsdóttir

G 120 Hayet Yihia Al Mansoor = Hjallastefnan

G 121 Ahlmam Abdullah Al Keybesee= Sigríður Karlsdóttir

G 122 Kahdeja Nasaer Al Ansee= Ásta K. Pjetursdóttir

G 123 Reem Abdullah Al Haymi=Valborg Sigurðardóttir

G 124 Maram Amin Al Kamel = Edda Gísladóttir/Þröstur Laxdal

G 125 Hanan Gihad Mohamed Al Maadi= Ragnheiður Hrafnkelsdóttir
Drengir:

B 2 Adel Radwan Al Radwan= Sindri Snorrason

B 3 Rabee Abdullah Al Sharabi= Högni Eyjólfsson

B 4 Maher Mohamed Aleh Al Remee=Birna Sveinsdóttir

B 9 Amjad Al Sadeq Al Namosse= Sif Arnarsdóttir

B 10 Mohammed Jamil Al Selwee = Eyþór Björnsson

B 17 Wadee Abdullah Al Sharabi=Guðmundur Pétursson

B 18 Jamal Hamid Al Shamree= Helga Kristjánsdóttir

B 40 Ahmed Abdelmalik Al Ansee=Ingvar Teitsson

B 32 Abdulrahman Al Maswari= Guðný Ólafsdóttir

B 35 Mohamed Husan Al Shameri= Ásdís Stefánsdóttir,

B 44 Mohamed Nagi Obad= Edda Ragnarsdóttir

B 48 Galeb Yheia Salaeh Al Ansee=Kristín Sigurðardóttir/Geir Þráinsson

B 54 Husein Abdullateef Magraba= Anna Stefánsdóttir, Svíþjóð(nýr stuðningsmaður)

B 56 Majed Abdulrahman Al Oluwfee= Guðrún C. Emilsdóttir

B 58 Mohamed Abdulraman Al Oluwfee= Sigurpáll Jónsson

B 60 Amjad Derhem Al Solwee=Kristín Daníelsdóttir/Valur Kr. Guðmundsson

B 62 Ahmed Noman Al Wadi=Ólafur Birgir Davíðsson og fjölskylda

B 90 Yasir Ali Hohamed Al Amree =Hjallastefnan

B 99 Karam Abdulkareem Omear= Þórbergur Logi Björnsson

B 104 Abdulkareem Moh. Al Matri= Stanley Pálsson

B 105 Yihya Nasser Mohamed Al Ansee= Svanhildur Pálsdóttir(nýr stuðningsmaður)

B 107 Majed Yihay Galeb Al Mansoor= Ólafur Birgir Davíðsson og fjölskylda

B 108 Badre Yihay Al Matri=Þóra Kristjánsdóttir/Sveinn Einarsson

B 109 Fouad Naji Hussein Al Matri= Sesselja Bjarnadóttir/Ríkharð Brynjólfsson

B 110 Badre Abdulkareem Al Ansee= Sigríður Lister

B 111 Ali Njeeb Labib Qarase= Eva Yngvadóttir/Sigurjón Sigurjónsson

B 112 Ibrahim Ahmed Qarase=Loftur Sigurjónsson

B 113 Basheer Nabil Ahmed=Sesselja Bjarnad/Ríkharð Brynjólfsson

B 115 Basheer Nabil Ahmed=Bára Hjaltadóttir/Magnús Arngrímsson

B 116 Aiman Yassen Moh. Al Shebani= Margrét Hermanns Auðardóttir

B 117 Jamil Sadique Al Shimee= Æsa Bjarnadóttir/Sverrir Jakobsson

B 120 Adnan Ahmed Al Hombose= Pétur Jósefsson