Þessari síðu er ekki ætlað að fjalla um pólitík í Miðausturlöndum enda er það flókin tík.
En einatt hvarflar að mér hvort fréttamenn á íslenskum fjölmiðlum og skrifa um erlend málefni viti hreint ekki í hausinn á sér og tvísögnin og margsögnin og vitleysan er stundum svo mikil að það gengur fram af mér.
Í Morgunblaðinu í dag er til dæmis sagt frá því að hópur Michels Ayuns sem er forsvarsmaður örgahóps kristinna í Líbanon styðji mótmæli gegn stjórn Fuads Siniora forsætisráðherra og sé því sammála þeim varhugaverðu mönnum sem mér skilst að Hizbollah sé.
Þeir vilji koma Siniora frá vegna þess að þeir (og um fram allt Ayun sem var raunar í útlegð árum saman og kristnir menn í Líbanon voru ekki of lukkulegir þegar hann sneri heim úr útlegð því hann hafði ansi hreint grugguga samvisku) gruni Siniora um að vera hliðhollan Vesturlöndum og þá væntanlega Bandaríkjunum meðtöldum. Í næstu setningu er svo tekið fram að Líbanir þessir gruni stjórn Sýrlandinga um morðið á Pierre Gemayel, ráðherra sem er Maroniti og var skotinn nýlega.
Og því má spyrja: Hvernig kemur þetta heim og saman? Eru sýrlenska stjórnin ekki örugglega svakalega mikill óvinurr Vesturveldanna og þá ekki síst Breta og Bandaríkjamenna.
Er stjórnin í Damaskus ekki óalandi og óferjandi að mati Vesturlanda af því hún tregðast við að hlýða Vesturveldunum (í flestum tilvikum samasem Bandaríkjamönnum)?
Hvernig kemur þetta heim og saman. Ég fæ ekki almennilega séð það.
Og svo njóta Hizbollar (sem eru sjítar) stuðnings Sýrlendinga sem eru sunnítar að miklum meirihluta.......ætli fréttamenn reyni aldrei að lesa sér til hvað þá setja atburði og annað í samhengi svo það sé einhver glóra í því sem þeir matreiða ofan í okkur?
Sem betur fer vona ég að VIMA félagar og aðrir þeir sem hafa ferðast til þessara landa hugsi sig amk tvisvar um áður en þeir gleypa svona blaður og hreinustu vitleysu án þess að þessu sé dýft ofan í pottinn hvað þá meira.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Já Jóhanna mín, svona er þessi heimur okkar. Þessi þröngur heimur okkar hér á Fróni þar sem Miðausturlöndin eru svo langt í burtu hvort sem er að það er bara eins gott að taka upp ótuggið og ómelt frá fréttastofum (helst AP og Reuteurs sem mala í eina átt). Þessi þröngur heimur fréttaflutninganna þar sem það er ekki lengur fréttin sem gildir heldur það boðskap sem hún ber. Manstu Timisoara? Rannsóknarblaðamanneskan á erindi á öðrum slóðum en á Grund, það væri frekar að byrja að nota heilbrigðu cellurnar gráu til að hjálpa manni að lesa sig til í gegnum fréttaflutningi. En... selur það??? Maður verður að leita sjálfur - sbr. Jemen fréttirnar líka. VIMA er betra að þessu leyti en allar fréttastofurnar til samans!
Kv. Dominique :)
Post a Comment